Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Hólabraut 18 - 101Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í miðbænum, með stakstæðum bílskúr, fallegri einkaverönd fyrir framan hús til vesturs og sameiginlegum garði bakvið hús til austurs. Eignin er samtals 86,2 fm., þar af er bílskúr 24,2.Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, stofu, eldhús og svefnherbergi.
Forstofa er nokkuð rúmgóð með flísar á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er inn af forstofu, þar er flísar á gólfi, innrétting í kringum vask, handklæðaofn, baðkar með sturtutækjum og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa er björt með parket á gólfi og gluggum til vesturs.
Eldhús er með parket á gólfi, eldhúskrók, ljósri innréttingu með spanhelluborði og stæði fyrir minni tegundina af uppþvottavél sem getur fylgt og ísskáp. Úr eldhúsi er gengið út í sameiginlegan garð þaðan sem er aðgengi um inngönguhurð í bílskúr.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Annað: -Eigninni fylgir sér bílastæði fyrir framan bílskúr
-Hiti að hluta í verönd fyrir framan hús
-Timburskjólveggir nýlegir
-Flott staðsetning, alveg við miðbæ Akureyrar
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955