Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Ásatún 6 - 202
Um er að ræða mjög góða tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi með sér inngangi nyrst í Naustahverfi. Eignin er skráð samtals 66,8 fm. að stærð þar af er geymsla 5,2 fm.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými. Eigninni fylgir sér geymsla í sameign sem og hlutdeild í vagna og hjólageymslu á 1. hæð. Gott útsýni frá íbúð.
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
þvottahús er innaf forstofu með flísum á gólfi, hillur og bekkplata með vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi á þvottahúsi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að hluta, innrétting við vask, upphengt wc og baðkar með sturtutækjum.
Svefnerberbergi með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa og eldhús í opnu rými með flísum á gólfi, útgengi út á stórar svalir til vesturs úr stofu með góðu útsýni. Flísar milli efri og neðri skápa og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Annað: - Gólfhiti
- Sér inngangur
- Útsýni
- Stutt í verslun
- Stutt í golfvöllinn og náttúruparadís í Naustaborgum
- Bílastæði austan og norðan við hús
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955