Opið hús: 24. september 2026 kl. 16:30 til 17:00.Opið hús: Tjarnarlundur 16 - 401, eignin verður sýnd fimmtudaginn 24. september 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Tjarnarlundur 16 - 401 (H)
Um er að ræða endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á efstu hæð í mjög vel staðsettu fjölbýli á Brekkunni. Eignin er samtals 83,4 fm., þar af er sér geymsla í sameign 5,4 fm.. **Laus til afhendingar við kaupsamning**
**Rúmgóð þriggja herbergja íbúð**
**Efsta hæð, flott útsýni**
**Frábær fyrstu kaup**
**Ný eldhúsinnrétting, innihurðir og fleira**Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, geymslu innan íbúðar, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, stofu og geymslu í sameign.
Forstofa er með parket á gólfi.
Hol er með parket á gólfi og tengir öll rými íbúðarinnar.
Eldhús er með parket á gólfi, glæný innrétting frá IKEA með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgir. Glæsilegt útsýni til norðurs úr eldhúsi.
Geymsla/búr innan íbúðar er inn af eldhúsi.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og nýjir fataskápar í stærra herberginu. Búið er að skipta um glugga í báðum herbergjum.
Baðherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, innréttingu í kringum vask, sturtu aðgreinda með glerskilrúmi og handklæðaofn.
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi og þaðan er gengið út á sólríkar svalir til suðurs þaðan sem er glæsilegt útsýni.
Annað:-Nýtt eldhús (hurðar á innréttingu sem vantar eru í pöntun)
-Nýir rafmagnstenglar í eldhús og og rafmagnskaplar að mikluleiti endurnýjaðir í eldhúsi
-Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir
-Allir veggir málaðir nema í geymslu/búri
-Nýjar innihurðir
-Nýtt gólfefni í geymslu/búri, vínilparket
-Nýr fataskápur í hjónaherbergi
-Skipt um alla tengla og rofa í ibúðinni 2015
-Skipt um glugga í herbergjum á norður hlið.
-Húsið var sprunguviðgert og málað 2021
-Skipt um þakdúk og þakkant 2023
-Frábær staðsetning, stutt í íþróttasvæði KA, verslun og ýmis konar þjónustu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955