Grenilundur 4 - 202 0 600 Akureyri
Grenilundur 4 - 202 0 , 600 Akureyri
70.000.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 103 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2004 52.100.000 62.450.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 103 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2004 52.100.000 62.450.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Grenilundur 4 – 202
 
Um er að ræða flotta fjögurra herbergja íbúð á góðum og eftirsóttum stað í Lundarhverfi. Skráð stærð skv. HMS er 103,5 fm. og er íbúðin á efri hæð í fjórbýli með steyptar svalir og útsýni til suðurs.

Eignin skiptist í forstofu, geymslu, þvottahús, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, og baðherbergi.
 
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp úr spónlagðri eik.
Stofa og eldhús mynda saman opið og bjart alrými þar sem loft er upptekið og gefur rýminu því aukna lofthæð og skemmtilegan svip. Parket er á gólfi og gólfhiti í stofu. Innrétting í eldhúsi er úr spónlagðri eik. Innbyggð uppþvottavél fylgir við sölu og nýlegur ísskápur getur fylgt. Í stofu eru stórir gluggar til suðurs. Gardínur í stofu geta fylgt. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir.
Svefnherbergin eru þrjú. Þar eru parket á gólfum og hvítir fataskápar í tveimur herbergjanna.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu, walk-in sturtu, salerni og handklæðaofni. Einnig er opnanlegur gluggi. Á gólfum, og að mestum hluta veggja, eru flísar.
Þvottahús er með ljósri innréttingu og þar er pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Í geymslu innan íbúðar eru hillur og opnanlegur gluggi. Einnig er geymsla í sameign á jarðhæð og lítil sameiginleg geymsla undir stiga.

Búið að endurnýja þakkant og greiðir núverandi eigandi fyrir framkvæmdirnar. 

Annað:
-Ljósleiðari
-Matvöruverslun í göngufæri
-Stutt í alla skólaþjónustu
-Rafhleðslustöð er komin upp fyrir húsið
-Í nágrenni við nýlegt leiksvæði


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.