Opið hús: 19. október 2026 kl. 16:15 til 17:00.Opið hús: Eignin verður sýnd mánudaginn 19. október milli kl. 16:15 og kl. 17:00.
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Dalsgerði 2 DMjög skemmtileg og rúmgóð 5-6 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á mjög vinsælum stað á efri Brekku. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð bæði að innan og utan, sérstaklega veröndin og bílastæði vestan við hús. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun, þjónustu og íþróttasvæði KA. Eignin skiptist í tvær jafn stórar hæðir, með tveimur forstofum, fjórum svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, tveimur baðherbergjum og þvottahúsi.
Efri hæð: Forstofa er með ljósar flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með parket á gólfi, hvít sprautaða eldhúsinnréttingu, innbyggða uppþvottavél, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp og eldhúskrók. Eldhúsi var breytt af núverandi eigendum, opnaður veggur að stiga til hálfs og styttur veggurinn við forstofu sem opnar allt rýmið og hleypir birtu betur inn.
Stofa og hol er með parket á gólfi. Stofa er mjög rúmgóð en hún hefur verið stækkuð á kostnað svefnherbergis sem var í austurenda hennar. Hægt er að breyta því aftur og er þá gengið inn í svefnherbergið við hlið baðherbergis. Afar bjart rými þar sem gluggar eru bæði til austurs og vesturs.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað og er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með sturtutækjum, handklæðaofn, góð innrétting í kringum vask og upphengt salerni.
Svefnherbergið á hæðinni er með parket á gólfi og fataskáp.
Neðri hæð: Forstofa neðri hæðar er með flísar á gólfi, veggjaþiljur á einum vegg og opnu fatahengi.
Gangur er með parket á gólfi og er gengið niður á gang af efri hæð um steyptan parketlagðan stiga. Undir stiga er opið geymslurými.
Svefnherbergi hæðarinnar eru þrjú, öll mjög rúmgóð með parket á gólfi og tvö af þeim með góðum skápum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Baðherbergi hæðarinnar er með flísar á gólfi og veggjum að mestu, sturtu, vask með skápaplássi yfir upphengdu salerni.
Þvottahús, þar er gólf lakkað, innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og þá er búið að opna út úr rýminu á verönd fyrir framan og vestan við hús þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.
Verönd fyrir framan eignina verið endurnýjuð og steypt gryfja með timbur skjólveggjum, þar sem gert er ráð fyrir heitum potti, lagnir lagðar að og í frárennsli. Þá er gert ráð fyrir hita undir hellum í stærstum hluta þess endurnýjaða auk þess sem gert er ráð fyrir hita í
bílaplani sem er malbikað, á eftir að tengja. Hleðslustöð er við bílaplan með stærri kappli og
inntakslagnir fyrir heitt og kalt vatn voru einnig endurnýjaðar að stofni á sama tíma.
Á baklóð sem snýr til austurs er sólpallur og perlumöl í lóð auk tveggja geymsluskúra, annar 15 fm. sem er einangraður og með tvöfaldri hurð. Hinn er minni og óeinangraður.
Annað:
**Eignin getur verið laus í janúar**-Gólfhiti á efri hæð
-Baðherbergi efri hæðar endurnýjað 2019
-Innihurðir endurnýjaðar á efri hæð
-Hluti af eldhúsinnréttingu sérsmíðuð, aðrir frontar sprautaðir, ný bekkplata og eldhúsborð sérsmíðað úr sama efni
-Glæsilegt útsýni til vesturs að Hlíðarfjalli er úr eldhúsi og stofu.
-Ljósleiðari
-Þrír inngangar í íbúðina (tveir að vestan, aðalinngangur og inngangur í þvottahús um gryfju og einn til austur)
-Svalir til vesturs lengdar út
-Húsið málað að utan 2021
-Malbikað bílastæði fyrir allt að þrjá bíla framan við hús og sameiginleg bílastæði við norður enda.
-Afar lítil umhirða á lóð, ekkert gras
-Botnlangagata
-Frábært útsýni sérstaklega til vesturs
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:
464 9955