Opið hús: 16. október 2026 kl. 16:00 til 16:30.Opið hús: Eignin verður sýnd föstudaginn 16. október milli kl. 16:00 og kl. 16:30.
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Stapasíða 11 I
Virkilega vel skipulögð og falleg 4-5 herbergja raðhúsíbúð á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr sem hefur verið töluvert endurnýjuð. Heitur pottur á stórum timburpalli og góður geymsluskúr með rafmagni aðgengilegur af palli. Eignin er samtals 162,6 fm., þar af er bílskúr 23 fm.. Íbúðin skiptist í á neðri hæð, forstofa, þvottahús með bakdyrainngangi, snyrtingu, stofu og eldhús. Á efri hæð, stórt hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
- Þak endurnýjað
- Gler endurnýjað
- Hvitaveitupottur á palli
- Bílskúr aðgengilegur úr íbúð
- Nýlegt eldhús og eldhústæki
Neðri hæð: Forstofa er með ljósar flísar á gólfi og góðum fataskáp
Þvottahús er inn af forstofu, þar eru sömu flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, vask og gott skápapláss.
Bakdyrainngangur er í þvottahús.
Snyrting neðri hæðar er með flísar á gólfi, salerni og litla inrnéttingu undir vask.
Stofa er afar rúmgóð og björt með parket á gólfi og úr stofu er gengið út á timburpall til suðurs.
Eldhús var endurnýjað 2021, þar er parket á gólfi, ljós innrétting með viðar bekkjarplötu, stæði fyrir ísskáp, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og tækjaskápur. Við enda innréttingar er lítið barborð.
Geymsla er undir stiga neðri hæðar.
Bílskúr er innangengur og þar var áður geymsla í enda bílskúrs en er hann nú opinn. Nýleg innkeyrsluhurð er í bílskúr og hleðslustöð tengd við enda bílskúrs.
Efri hæð: Teppi er á
stiga milli hæða
Hol er afar rúmgott, með parket á gólfi og möguleiki að vera þar með sjónvarpshol.
Svefnherbergi eru þrjú, tvö þeirra afar rúmgóð og öll með parket á gólfi og stórum fataskápum. Mögulegt er að bæta við einu svefnherbergi. Úr hjónaherbergi og minna barnaherberginu er útgengt út á svalir, til norðurs úr hjónaherbergi sem er þá yfir bílskúr að hluta og til suðurs úr barnaherbergi.
Baðherbergi er með ljósar flísar á gólfi og hluta veggja í kringum baðkar, sturtu og innréttingu í kringum vask. Gluggi er á baðherbergi.
Annað: -Þak endurnýjað 2021
-Nýtt gler í íbúð 2021
-Eldhús og tæki endurnýjuð 2022
-Ný innkeyrsluhurð 2024
-Útidyrahurðir endurnýjaðar
-Parket endurnýjað að stærstum hluta 2019
-Hitaveitupottur settur 2021
-Búið að leggja rafmagn í geymsluskúr á palli og þar eru innstungur
-Ljós á palli tengd við birtuskynjara
-Ljósleiðari tengdur
-Stutt í leik- og grunnskóla
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955