Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Huldugil 1
Um er að ræða bjarta, fallega og mikið endurnýjaða fimm herbergja raðhúsaíbúð ásamt sambyggðum bílskúr í suðurenda. Mjög góð steypt verönd með geymsluskúr og heitum potti. Góð bílastæði framan við hús.
Eignin er skráð samtals 179,7 fm. að stærð (óbyggður sólskáli 14,7 fm.) og bílskúr og geymsla skráð samtals 31,2 fm. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu, þrjú svefnherbergi ásamt herbergi á lofti ofan við bílskúr, farið í herbergið úr stofu. Tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Mjög gott geymsluloft er yfir hluta af eigninni.
Forstofa með flísum á gólfi, framan við forstofu er fataskápur.
Eldhús með parket á gólfi, góð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og bakraofn í vinnuhæð ásamt combiofni/örbylgju.
Borðkrókur í eldhúsi.
Borðstofa og
stofa í opnu rými með parket á gólfi, upptekið loft og útgengi út á verönd til vesturs úr stofu.
Svefnherbergi eru þrjú á ganginum, öll eru þau með parket á gólfi. Fataskápar í einu herbergi sem geta fylgt. Fjórða herbergið er úr stofunni farið upp stiga og er þar opnanlegur þakgluggi. Geymslurými er við enda herbergis.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Þvottahús með flísum á gólfi, góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Vaskur, opið fatahengi með efri og neðri skápum. Opnanlegur gluggi á þvottahúsi og auka inngangur frá bílastæði. Úr þvottahúsi er innangengt í bílskúrinn.
Bílskúrinn með flísum á gólfi, rafdrifinn hurðaropnari á bílskúrshurð. Inn af bílskúrnum er baðherbergi og útgengi út á
verönd.
Baðherbergi inn af bílskúrnum með flísum á gólfi og við sturtu, upphengt wc, lítil innrétting við vask ásamt speglaskáp, opnanlegur gluggi og rennihurð.
Verönd steypt með timburskjólveggjum, Annað:-Gler hefur verið endurnýjað að undanskildum einum glugga
-Stór steypt verönd vestan húss
-Heitur pottur
-Tvö baðherbergi
-Sameiginlegt leiksvæði
-Fjölskylduvæn staðsetning
-Geymsluskúr á lóð
Ath. að grunnmynd hefur verið breytt af fasteignasala miðað við núverandi skipulag (baðherbergi bætt við í bílskúr).
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955