Opið hús: 09. nóvember 2026 kl. 16:30 til 17:00.
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Hjallalundur 9 - 401
Um er að ræða bjarta fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Svalir til vesturs með góðu útsýni.
Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu, sér geymsla í sameign ásamt hlutdeild í vagna- og hjólageymslu.
Anddyri með parket á gólfi, á gangi eru fataskápar og opið fatahengi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að hluta. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask og tengi fyrir þvottavél á baði.
Eldhús og stofa í opnu rými með parket á gólfi, eldri innrétting sem búið er að mála efri skápa, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Útgengi út á stórar svalir til vesturs úr stofu með góðu útsýni.
Sér
geymsla í sameign á 1. hæð. Sameign er mjög snyrtileg og vel við haldið.
Annað: - Gott útsýni
- Húsið málað að utan 2019
- Nýtt gler austan megin bæði í íbúð og sameign ca 2022
- Nýjir gluggar og gler, svalahurð vestan megin 2026
- Svalagólf málað sumarið 2026
- Stigagangur málað ca 2019 og nýtt teppi á stigagang fyrir nokkrum árum.
- Sameign á 1. hæð málað 2025
- Ljósleiðari
- Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og fl.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955