Huldugil 10 - 101 603 Akureyri
Huldugil 10 - 101 , 603 Akureyri
79.900.000 Kr.
Tegund Raðhús
StærÐ 111 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1995 70.250.000 75.850.000 0
Tegund Raðhús
StærÐ 111 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1995 70.250.000 75.850.000 0
Opið hús: 13. nóvember 2026 kl. 16:00 til 16:45.

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Huldugil 10 - 101

Um er að ræða bjarta og fallega þriggja herbergja endaraðhúsaíbúð með sambyggðum bílskúr á vinsælum stað í Giljahverfi. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð sl. ár. Eignin er samtals 111,3 fm. en þar af er bílskúr 25,1 fm..

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr.

Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús var endurnýjað 2023 og er með parket á gólfi. Þar er hvít IKEA innrétting með einn bakaraofn í vinnuhæð og combi ofn fyrir ofan hann, stæði fyrir ísskáp og innbyggða uppþvottavél. 
Baðherbergi var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Þar er walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Flísar á gólfi og gólfhiti.
Svefnherbergi eru tvö talsins með parket á gólfi og rúmgóð. Fataskápar eru í báðum herbergjum. Í minna herberginu er hurð til austurs þar sem hægt er að ganga út í garð. Minna herbergið er skráð á teikningu sem þvottahús/geymsla.
Bílskúr er flísalagður og með hvítri innréttingu þar sem pláss er fyrir þvottavél og þurrkara. Hægt er að ganga inn í bílskúrinn innan úr íbúð en einnig um útidyrahurð. Einnig er rafdrifin innkeyrsluhurð. Skráð stærð bílskúrs er 25,1 fm. skv. HMS. Geymsluloft er yfir hluta af bílskúr og íbúðar.

Annað:
-Stutt í leik- og grunnskóla
-Hiti er í stétt að hurð 
-Gott bílastæði fyrir framan bílskúr auk annars bílastæðis
-Parket endurnýjað á allri íbúðinni og settar nýjar innihurðir árið 2022
-Húsið var múrviðgert og málað að utan sumarið 2026
-Ljósleiðari
-Rúmgóður geymsluskúr á lóð frá 2023 og þá var einnig byggt ruslaskýli að framan

*ATH heitur pottur fylgir ekki

Grunnmynd hefur verið breytt af fasteignasala miðað við núverandi skipulag eignar.

Vakin er athygli á að eigandi fasteignarinnar fellur undir lagaákvæði er snýr að tengslum við fasteignasalann/starfsmann fasteignasala sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 70/2015, lög um sölu fasteigna og skipa.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.