Norðurgata 48 - 201 0 600 Akureyri
Norðurgata 48 - 201 0 , 600 Akureyri
55.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 103 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1947 48.600.000 49.450.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 103 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1947 48.600.000 49.450.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Norðurgata 48 - 201

Um er að ræða rúmgóða, bjarta fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð í tvíbýli á Eyrinni. Íbúðin hefur verið endurnýjuð að hluta. Skráð stærð skv. HMS er 103,4 fm. Eignin er á góðum stað í göngufæri við miðbæinn með fjölda veitingahúsa ásamt margs konar þjónustu og verslun, skóla og leikskóla. Fallegt útsýni er úr íbúðinni.

 
Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, stofu, baðherbergi, eldhús, búr/geymslu og sameiginlegt þvottahús á neðri hæð. Að auki fylgir u.þ.b. 12 fm. geymsluskúr á lóð.

Forstofa er rúmgóð og þar eru flísar á gólfi. Inn af forstofu sem er á neðri hæð, er svefnherbergi og þar er parket á gólfi. Gengið er upp teppalagðan stigagang þar sem komið er inn í hol sem tengir saman önnur rými íbúðarinnar.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi.
Svefnherbergi á efri hæð eru tvö og þar er parket á gólfum. Í hjónaherbergi eru innbyggðir fataskápar og þar er gengið út á vestursvalir. Svalahurð er nýleg.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er ágæt innrétting, baðkar, salerni og handklæðaofn. Nýlegur gluggi með opnanlegu fagi er á baðherbergi.
Eldhús er með ljósri viðarinnréttingu/sprautulökkuð, dökkum flísum á gólfi og flísar milli efri og neðri skápa. Uppþvottavél fylgir. Inn af eldhúsi er búr/geymsla með opnanlegum glugga.
Gengið er úr eldhúsi niður í sameiginlegt þvottahús og þar er pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er gengið út í sameiginlegan garð um annan sameiginlegan inngang.
 
Annað:
-Þak endurnýjað frá grunni 2024 ásamt rennum og í framhaldi var loft á efri hæð endurnýjað 2026
-Nýjar hvítar innihurðir
-Íbúðin er nýmáluð
-Svalahurð og gluggi á baðherbergi endurnýjað 2023
-Aðalspennurofi í rafmagnstöflu endurnýjaður 2023
-Ný blöndunartæki í sturtu 2025
-Rúmgóður geymsluskúr á lóð
-Skolplagnir myndaðar 2022
-Bílastæði á lóð
-Ljósleiðari í íbúð

ATH. að grunnmynd hefur verið breytt af fasteignasala miðað við núverandi skipulag.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.