Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Lindasíða 2 - 104
** Eignin er laus til afhendingar við samningsgerð **Góð tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýlishúsi fyrir 60+, sameiginlegur tengigangur og tengihús yfir í þjónustumiðstöðina í Bugðusíðu 1 og líkamsræktina Bjarg.
Eignin skiptist í forstofu, geymslu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými. Úr eldhúsi er farið út í sólskála og þaðan út á hellulagða verönd. Forstofa með parket á gólfi og fataskáp.
Geymsla er innan íbúðar með parket á gólfi.
Baðherbergi með þvottaaðstöðu, flísar á veggjum að hluta, innrétting við vask og tengi fyrir þvottavél í innréttingu.
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi. Í eldhúsi er ljós innrétting með ágætu vinnuplássi. Gengið út í lokaða sólstofu úr eldhúsi og úr sólstofu út á hellulagða verönd.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi.
Annað:- Parket (2021) og nýleg blöndunartæki á baði og eldhúsi.
- Góð bílastæði
- Ljósleiðari.
- Snyrtileg samegin.
- Þjónustugangur er tengdur við Bjarg þar er bæði heitur matur, afþreying og líkamsrækt.
- Eign fyrir 60 ára og eldri.
- Íbúðin er laus við afhendingu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955