Opið hús: 25. nóvember 2026 kl. 16:15 til 17:00.Opið hús: Eignin verður sýnd miðvikudaginn 25. nóvember 2026 milli kl. 16:15 og kl. 17:00.
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Furulundur 2 B
Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á afar vinsælum stað á Brekkunni. Eignin er samtals 122 fm. auk geymsluskúrs á verönd sem snýr til vesturs. Eigninni hefur verið vel við haldið, málað reglulega og skipt um gler. Eignin er á einstaklega góðum stað þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og KA svæðið.Neðri hæð skiptist í forstofu, þvottahús, eldhús, stofu, snyrtingu og geymslu undir stiga. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Þvottahús við hlið forstofu er með flísar á gólfi, rennihurð, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og skolvaskur í bekkjarplötu. Góðar hirslur eru í þvottahúsi.
Eldhús var endurnýjað 2019 og þar er parket á gólfi. Meðal annars breikkað á kostnað forstofu, innréttingar eru sérhannaðar frá HTH með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Bakaraofn í vinnuhæð, búrskápur með innstungum og tækjaskápur einnig með innstungum. Í eldhúsi er hiti í hluta af gólfi eða við norðurvegginn.
Stofa er rúmgóð og afar björt með parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á hellulagða verönd til suðurs.
Snyrting er með vínilparketi á gólfi, upphengt klósett og vask.
Geymsla er undir stiga.
Stigi á efri hæð er með nýlegu, slitsterku sisal teppi sem er umhverfisvænn kostur úr plöntutrefjum.
Hol efri hæðar er með parket á gólfi. Í holi eru einnig sérsmíðaðir skápar með skúffueiningum sem nýtast vel fyrir svefnherbergi hæðarinnar.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi og úr herberginu er gengið út á svalir til suðurs þaðan sem er frábært útsýni til suðurs og vesturs að Súlum og Hlíðarfjalli.
Baðherbergi var endurnýjað í kringum 2020, þar eru flísar á gólfi og veggjum að stærstum hluta. Góð innrétting í kringum vask með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni, baðkar með sturtutækjum og handklæðaofn.
Annað: -Geymsluskúr á verönd er óeinangraður en leitt er í hann rafmagn
-Hiti er í hellulagðri stétt fyrir framan hús og er afar snyrtileg aðkoma að húsinu en rafmagnstenglar eru í timburverki fyrir framan hús og rafmagn leitt í beð
-Verönd er hellulögð með timburskjólveggjum og hlið út að götu til suðurs.
-Þak háþrýstiþvegið, grunnað og málað 2019
-Þakkantur var viðgerður 2025, skipt um það sem þurfti af fjölum, þakrennur þéttar á samskeytum og þakkantur málaður
-Húsið málað 2014 og síðan verið vel við haldið eftir þörfum, lítur mjög vel út
-Skipt um gler í öllum gluggum 2021 fyrir utan opnanleg fög og settir plastlistar
-Ný svalahurð og gluggi við hurðina úr stofu út á verönd
-Rafmagnstafla endurnýjuð fyrir um fjórum árum, auk þess sem bætt var við greinatöflu í eldhúsi
-Loft er tekið niður í eldhúsi, snyrtingu og baðherbergi til að koma fyrir innfelldri lýsingu
-Eirlagnir í ofnakerfi
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955